sthafn.is


Decrease font size Default font size Increase font size

 

Orlofsmál

Hér eru upplýsingar um valkosti í orlofsmálum.

 

Kjarasamningar

Hér getur þú opnað kjarasamninga sth

 

Starfsmenntunarsjóður

Hér er hægt að sækja um styrki í starfsmenntunarsjóð STH

 

Lög og Reglur STH

Hér getur þú skoðað lög og reglur STH

Heim arrow Fréttir
Fátækt á Íslandi. Borgarafundur Prenta Rafpóstur
fimmtudagur, 02 september 2010

Borgarafundur um málefni bótaþega og láglaunaþega. Fundurinn verður haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur þann 8.september kl. 20.

Frummælendur:Talsmenn öryrkja, aldraðra, atvinnuleitenda, félagsbótaþega og láglaunaþega ásamt fulltúum hjálpasamtaka. Pallborðsumræður. Allir hjartanlega velkominir.

Síðast uppfært ( fimmtudagur, 02 september 2010 )
 
Samþykktu samning naumlega Prenta Rafpóstur
miðvikudagur, 01 september 2010
Félagar í Landssambandi slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna hafa samþykkt nýgerðan kjarasamning við launanefnd sveitarfélaga í almennri atkvæðagreiðslu. Naumt var á munum, en alls sögðu 109 já en 100 nei. Alls voru 237 á kjörskrá en atkvæði greiddu 213, eða 90%. Auðir seðlar og ógildir voru 4. Samningurinn hefur því verið samþykktur og frekari aðgerðum aflýst, en allsherjarverkfall hefði verið boðað í upphafi þessa mánaðar hefðu samningar ekki náðst. Samningurinn gildir til 30. nóvember.
 
Fjölbreytt framboð hjá Starfsmennt Prenta Rafpóstur
þriðjudagur, 24 ágúst 2010
Starfsmennt býður upp á fjölbreytt framboð námsleiða í haust, sem endranær, líkt og sjá má í veffréttabréfi fræðslusetursins fyrir ágúst. Opinberum starfsmönnum standa nú til boða starfstengdar námsleiðir eða þverfagleg námskeið sem efla almenna starfshæfni. Þá geta atvinnuleitendur og þeir sem horfa fram á breyttar aðstæður á vinnustað sótt frábær súpunámskeið þar sem færustu sérfræðingar kenna eða fengið viðtal við náms- og starfsráðgjafa. Forsvarsmenn stofnana geta einnig pantað farandfyrirlestra inn á vinnustaði eða sótt um Ráðgjafa að láni til að vinna að afmörkuðum mannauðsverkefnum. Öll þjónusta Starfsmenntar er félagsmönnum að kostnaðarlausu og þeirra mannauðssjóða sem gert hafa sérstaka samninga fyrir sitt fólk en einnig opin öðrum sem þá greiða þátttökugjöld
 
Kynbundinn launaumunur minnkar hjá Reykjavíkurborg Prenta Rafpóstur
mánudagur, 23 ágúst 2010

Enn er kynbundinn launamunur til staðar hjá Reykjavíkurborg, þó úr honum hafi dregið á síðustu tíu árum. Konur eru að meðaltali með 98% af dagvinnulaunum karla meðal starfsfólks í fullu starfi. Munurinn er hins vegar mun meiri þegar heildarlaunin eru skoðuð, en konur eru aðeins með 87% af heildarlaunum karla í fullu starfi. Karlar fá hærri akstursgreiðslur og meiri yfirvinnu greidda. Þetta kemur fram í nýrri úttekt á kynbundnum launamun hjá Reykjavíkurborg.

Þegar leiðrétt hefur verið fyrir starfsaldur, aldur og starfsflokkun starfsfólks í fullu starfi, hafa karlar 3,7% hærri dagvinnulaun en konur og 8,1% hærri heildarlaun. Þegar þeir sem falla undir starfsmat eru skoðaðir kemur í ljós að leiðréttur munur á dagvinnulaunum er 5,2% körlum í vil og 8,3% á heildalaunum, einnig körlum í vil.

Eins og sést á meðfylgjandi töflu hefur kynbundinn launamunur minnkað á síðustu tíu árum.

Leiðréttur kynbundinn munur* á dagvinnu- og heildarlaunum allra starfsmanna Reykjavíkurborgar í fullu stafi frá árinu 1999 til ársins 2009.

Lesa meira...
 
Feðrum í fæðingarorlofi fækkar Prenta Rafpóstur
mánudagur, 23 ágúst 2010

Skerðingar á hámarksgreiðslum úr fæðingarorlofssjóði hafa valdið því að körlum sem taka fæðingarorlof hefur fækkað. Stjórn BSRB ályktaði gegn skerðingunni á sínum tíma, sem og framkvæmdarstjórn Sjúkraliðafélags Íslands og stjórn Kjalar. Morgunblaðið segir frá því að í ár stefni í að einungis 9.795 feður taki fæðingarorlof, en þeir voru 10.640 í fyrra og 10.362 árið áður. Konum sem taka sér fæðingarorlof hefur hins vegar fjölgað. Frá árinu 2008 hafa hámarksgreiðslur verið skertar í þrígang og lækkað úr 535.700 krónum á mánuði, í lok árs 2008, í 300 þúsund krónur nú.
Ályktun stjórnar BSRB var samþykkt 26. nóvember 2009 og er svohljóðandi:

BSRB krefst þess að sparnaðarkrafa sem hefur verið lögð á fæðingarorlofssjóð verði endurskoðuð. Íslenska fæðingarorlofskerfið hefur vakið mikla athygli hjá öðrum þjóðum og hefur verið horft til þess sem fyrirmynd. Ef sparnaðarkröfunni verður haldið til streitu er verið að hverfa áratugi aftur í tímann og vega að þeirri jafnréttishugsun sem í kerfinu felst.

Markmið fæðingarorlofslaganna er að tryggja að barn og foreldrar geti notið samvista. Einnig er lögunum ætlað að tryggja samræmingu fjölskyldu-- og atvinnulífs foreldra.

Skerðing á greiðslum í fæðingarorlofi dregur úr líkum þess að framangreind markmið laganna náist og er jafnframt varhugaverð afturför í jafnréttismálum.

 

 
Slökkviliðs- og sjúkraflutningarmenn semja Prenta Rafpóstur
mánudagur, 23 ágúst 2010
Samningar hafa náðst á milli Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningarmanna og launanefndar sveitarfélaga. Þeir voru undirritaðir í húsnæði Ríkissáttarsemjara rétt fyrir klukkan 17. Samningurinn verður borinn undir félagsmenn 31. ágúst, en þeir hafa verið samningslausir í um eitt ár.
 
Launafólk ber byrðarnar Prenta Rafpóstur
mánudagur, 23 ágúst 2010

Seðlabanki Íslands lækkaði stýrivexti sína um eina prósentu á miðvikudag, meira en margir höfðu búist við. Þessi lækkun er því fyrst og fremst að þakka að horfur í efnaghaslífinu eru betri en spáð hafði verið, til dæmis af Seðlabankanum sjálfum í maí.
Þó atvinnuleysi sé allt of mikið og taka þurfi á því af meiri festu en hingað til hefur verið gert, er það þó minna en spár gerðu ráð fyrir. Verðbólga hefur  hjaðnað og  fjárfestingar í atvinnurekstri eru meiri en reiknað hafði verið með. Það eru með öðrum orðum ýmis teikn á lofti um að botninum sé náð.

Hverju má þakka þennan árangur? Vissulega er hægt að tína margt til, en ég held að allir geti verið sammála um að fyrst og síðast sé það launafólk í landinu sem hefur borið byrðarnar. Ofan á öll persónuleg áföll hefur kaupmáttur þess rýrnað. Samið var um hækkun lágmarkstaxta í tengslum við stöðugleikasáttmálann, gegn efndum ríkisstjórnarinnar á mikilvægum sviðum, sem ekki hafa allar gengið eftir.

Síðast uppfært ( mánudagur, 23 ágúst 2010 )
Lesa meira...
 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Úrslit 1 - 7 af 152
Orlofsmöguleikar sumarið 2009

STH

Skrifstofa STH er við Hellisgötu 16 - 220 Hafnarfirði. Skrifstofan er opin á þriðjudögum og fimmtudögum frá 13-17.

www.sthafn.is
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

Sími: 555-3636
Fax:
565-0636

Samantekt

Orlofshús

Orlofshús Starfsmannafélags Hafnarfjarðar verða til úthlutunar frá 18. maí til 14. sept. 


Hafðu Samband

Hellisgata 16
220 Hafnarfjörður
Sími: 555 3636
Fax: 565 0636
Netfang: Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það