sthafn.is


Decrease font size Default font size Increase font size

 

Orlofsmál

Hér eru upplýsingar um valkosti í orlofsmálum.

 

Kjarasamningar

Hér getur þú opnað kjarasamninga sth

 

Starfsmenntunarsjóður

Hér er hægt að sækja um styrki í starfsmenntunarsjóð STH

 

Lög og Reglur STH

Hér getur þú skoðað lög og reglur STH

Heim arrow Fréttir arrow Lög og reglur STH
Lög og reglur STH Prenta Rafpóstur
miðvikudagur, 06 febrúar 2008

LÖG STARFSMANNAFÉLAGS HAFNARFJARÐAR.

1. gr.
Félagið heitir: Starfsmannafélag Hafnarfjarðar
(skammstafað: STH)

2. gr.
1.mgr. Tilgangur félagsins er að efla samvinnu með öllum starfsmönnum Hafnarfjarðarkaupstaðar og þeirra ríkisstarfsmanna sem í Starfsmannafélagi Hafnarfjarðar eru, og láta sér annt um allt það, sem þeim er til hagsbóta, svo sem: launakjör, tryggingar gegn veikindum og slysum, ellistyrk og eftirlaun, vinnutíma og vinnutilhögun, sem og aukna menntun og þekkingu félagsmanna.
2.mgr. Stjórn félagsins er skylt að taka til athugunar kærur einstaklinga eða starfsflokka innan félagsins, varðandi viðurgjörning þeirra hjá hlutaðeigandi stofnunum bæjarsjóðs og ríkisins og leitast fyrir um samkomulag.

3.gr.
1.mgr. Lög þessi gilda fyrir alla starfsmenn bæjarins og stofnana hans, sem taka laun samkvæmt kjarasamningi bæjarins og Starfsmannafélags Hafnarfjarðar, svo og fyrir aðra opinbera starfsmenn, sem óska eftir að vera félagsmenn STH, eftir því sem við getur átt og taka laun samkvæmt kjarasamningum, sem Starfsmannafélag Hafnarfjarðar gerir við Hafnarfjarðarkaupstað og aðra opinbera aðila. Með starfsmönnum bæjarins og stofnana hans er m.a. átt við starfsmenn byggðasamlaga og fyrirtækja sem bærinn á aðild að og skiptir ekki máli í því sambandi hvort vinnustaður starfsmanns sé innan bæjarmarka eða ekki.
2. mgr. Starfsmenn, sem vinna að opinberum bæjarmálum, en taka laun sín úr öðrum sjóðum en bæjarsjóði eða bæjarstofnana, geta gerst félagar gegn greiðslu venjulegs félagsgjalds.
3. mgr. Félagsmaður, sem lætur af starfi á aldursmörkum eða vegna veikinda og hefur unnið sér rétt til eftirlauna eða örorku heldur öllum félagsréttindum, en skal vera gjaldfrjáls.
4. mgr. Stjórn félagsins er skylt að fylgjast vel með því hverju sinni, hverjir eru fast- eða lausráðnir starfsmenn bæjarins og stofnana hans, svo og þeirra félagsmanna, sem eru ríkisstarfsmenn.
5.mgr. Félagsgjald, sem skal vera ákveðinn hundraðshluti mánaðarlauna skal ákveðinn á aðalfundi.
6.mgr. Aðalfundur skal einnig ákveða hvernig innheimtu félagsgjalda skuli háttað.
7.mgr. Félagsmenn, sem ekki greiða árlega gjöld til félagsins, missa félagsréttindi þar til þeir eru skuldlausir við það.

4.gr.
1.mgr.Enginn fullgildur félagsmaður getur neitað að taka við kosningu til starfa í þágu félagsins, nema auðsæ forföll hamli, þó geta menn neitað endurkosningu, ef þeir hafa gengt störfum tvö ár samfleytt, eða tvö kjörtímabil. Rækur úr félaginu er hver sá félagsmaður, sem kærður er fyrir að vinna félagsskapnum ógagn, og það sannast, og er samþykkt á aðalfundi.

5. gr.
1.mgr. Stjórn félagsins skal skipuð 5 mönnum, sem kosnir eru á aðalfundi samkvæmt eftirfarandi reglum: Formaður skal kosinn til eins árs í senn. Meðstjórnendur skulu kosnir tveir í einu til tveggja ára og gangi árlega tveir úr stjórninni á víxl. Á aðalfundi skal einnig kjósa tvo endurskoðendur og tvo menn í varastjórn til eins árs. Stjórnin skiptir með sér verkum og kýs varaformann, ritara, gjaldkera og meðstjórnanda. Einnig skal kjósa mann í stjórn Eftirlaunasjóðs Hafnarfjarðarkaupstaðar og einn til vara á 4 ára fresti, svo og fulltrúa á þing BSRB þriðja hvert ár.

6.gr.
1.mgr. Formaður er aðalforsvarsmaður félagsins. Hann kallar saman stjórnarfundi og stjórnar þeim, og boðar til félagsfunda eftir ákvörðun félagsstjórnar.
2.mgr. Almennum fundum skal stjórnað samkvæmt fundarsköpum félagsins.
3.mgr. Ritari heldur gerðabók, og færir í hana ágrip af því, sem á fundum gerist og allar ályktanir funda
4.mgr. Féhirðir varðveitir alla fjármuni félagsins, og skal allt handbært fé geymt í sparisjóð. Hann innheimtir árstillög félagsmanna og greiðir alla reikninga, eftir að formaður hefur ávísað þeim. Hann semur ársreikning og gerir fulla frein fyrir fjárreiðum félagsins á aðalfundi.
5.mgr. Reikningsárið er almannaksár og skulu reikningar félagsins lagðir fram endurskoðaðir þá.
6.mgr. Fulltrúi félagsins í stjórn Eftirlaunasjóðs starfsmanna Hafnarfjarðarkaupsstaðar, skal á aðalfundi gera grein fyrir starfsemi sjóðsins á liðnu starfsári.

7.gr.
1. mgr. Heimilt er stjórn félagsins að leita skriflegrar atkvæðagreiðslu allra atkvæðisbærra félagsmanna, um þau mál, sem henni þykir mikilsvarðandi fyrir félagið.

8.gr.
1.mgr. Stjórn félagsins boðar til almenns fundar þegar þörf krefur að hennar dómi, eða ef minnst 10 félagsmenn óska þess skriflega, og tilgreina tilefni, með minnst 3ja daga fyrirvara, og eigi síðar en 10 dögum eftir að stjórn félagsins barst krafan.
2.mgr. Aðalfundur félagsins skal haldinn á tímabilinu frá mars til nóvember  ár hvert, og skal hann boðaður með minnst 7 daga fyrirvara með auglýsingu á hverjum vinnustað og á samtengdri rás ríkisútvarps eða með skjáaulýsingu í RUV. Allir almennir fundir, aðrir en aðalfundir, skulu boðaðir með minnst 3ja daga fyrirvara á sama hátt og aðalfundir. Þegar sérstaklega stendur á, má þó boða til almenns fundar með skemmri fyrirvara.
3.mgr. Sé boðað til fundar samkvæmt lögum þessum telst hann löglegur.


9.gr.
Þessi eru sérstök verkefni aðalfundar:
1. Stjórn félagsins gefur skýrslu um starfsemi félagsins sl. ár.
2. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar félagsins og sérsjóða þess fyrir sl. ár.
3. Kosin stjórn og aðrir starfsmenn í þágu félagsins skv. ákv. 5.gr.
4. Teknar ákvarðarnir varðandi breytingar á lögum félagsins, ef fram koma.
5. Önnur mál.

10.gr.
1.mgr. Fundum skal stjórna samkvæmt fundarsköpum félagsins. Afl atkvæða ræður, en mál skoðast felld með jöfnum atkvæðum.
2.mgr. Til þess að breyta lögum og reglum félagsins þarf 3/5 greiddra atkvæða á löglegum aðalfundi. Tillögur um breytingar á lögum skulu berast stjórn félagsins eigi síðar en 14 dögum fyrir aðalfund.
3.mgr. Falli atkvæði jöfn í kosningum gildir hlutkestisreglan.

11.gr.
1.mgr. Ef fram kemur tillaga frá stjórn félagsins eða minnst 10% félagsmanna um að leggja félagið niður sem sjálfstæða félagseiningu með samruna við annað eða önnur félög innan B.S.R.B., er slíkt aðeins mögulegt með samþykki aðalfundar að undangenginni rækilegri kynningu meðal félgsmanna og þarf 3/5 greiddra atkvæða á aðalfundi til að samþykkja slíkt.
2.mgr. Ef félagið leysist upp skulu eignir þess renna til Eftirlaunasjóðs starfsmanna Hafnarfjarðarkaupstaðar.
3. mgr. Skal um þetta gera nánari fyrirmæli með sérstakri skipulagsskrá, er félagið samþykkir..

Hafnarfirði, 29.mars 1990.

 


 
 

 

Síðast uppfært ( miðvikudagur, 06 febrúar 2008 )
 
< Fyrri   Næsti >
Orlofsmöguleikar sumarið 2009

STH

Skrifstofa STH er við Hellisgötu 16 - 220 Hafnarfirði. Skrifstofan er opin á þriðjudögum og fimmtudögum frá 13-17.

www.sthafn.is
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

Sími: 555-3636
Fax:
565-0636

Samantekt

Orlofshús

Orlofshús Starfsmannafélags Hafnarfjarðar verða til úthlutunar frá 18. maí til 14. sept. 


Hafðu Samband

Hellisgata 16
220 Hafnarfjörður
Sími: 555 3636
Fax: 565 0636
Netfang: Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það